Launchið á nýju rúmfatalínunni frá Appreciate the Details og Tekk fór fram í Tekk versluninni og var vel sótt af gestum sem fögnuðu línunni með stæl.
Línan er innblásin af uppáhalds kaffidrykkjunum okkar, íslenskum heimilum og náttúrulegum jarðlitum og vakti mikla athygli fyrir hlýlegt yfirbragð, falleg smáatriði og náttúrulegan stíl.
Rúmfatalínan er í fallegum jarðlitum sem minna á liti kaffibauna, mjólkurfroðu og dökkan espresso og mynda rólega, hlýlega áferð.
Þessi litapalletta er hönnuð til að endurspegla bæði fegurð íslenskra heimila og róandi áhrif náttúrunnar, og gestir heilluðust af þessum djúpu litum og smáatriðum sem bæta hlýju og stíl í svefnherbergið.
Veislan var lífleg og afslöppuð, með lifandi tónlist sem skapaði góða stemningu.
Gestir fengu dýrindis drykki frá Vinklúbbnum, Sjöstrand Iceland og Akkúrat ásamt veitingum frá Sætum Syndum, sem gerði kvöldið enn notalegra og skemmtilegra.
Gestirnir fengu einnig fallega gjafapoka í samstarfi við Tekk, Sjöstrand, Jörth, Sérefni og Vínklúbbinn. sem gerði kvöldið enn notalegra og skemmtilegra.
Kári Sverriss, eigandi Appreciate the Details, og Tekk deildu sögum af því hvernig þessi einstaka lína varð til. Þeir lögðu áherslu á mikilvægi smáatriða og gæðahönnunar sem stuðlar að ró og vellíðan. Gestir gátu spjallað við Kára og fengið innsýn í það hvernig áhuginn á kaffi og íslenskri hönnun var sameinaður í þessari línu.
Kvöldinu lauk á sérstökum tilboðum á nýju línunni, sem gerði upplifunina enn eftirminnilegri. Þetta var kvöld fullt af ástríðu og sköpunargleði, sem gaf gestum nýtt sjónarhorn á hlýlegt og vandað rúmfatnað, þar sem smáatriðin skipta máli.
Ljósmyndir/ Arnór Trausti